14.05.2020
Vegna færri smita í þjóðfélaginu er nú komið að því að fara aftur að taka við lyfjum frá viðskiptavinum til eyðingar sbr. 25. gr. reglugerðar nr. 1266/2017 um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja.
06.03.2020
Við hjá Reykjavíkur Apóteki viljum minna á mikilvægi góðs og reglulegs handþvottar á meðan COVID19 veiran herjar á landann og heiminn allan.
08.02.2020
Þann 1. febrúar síðasliðinn, opnaði nýtt og glæsilegt apótek sem staðsett er á besta stað í Skeifunni, nánar tiltekið í Skeifunni 11b. Starfsfólk okkar í apótekinu í gamla Héðinshúsinu að Seljavegi 2 mun að sjálfsögðu standa vaktina áfram.
27.01.2020
Við bjóðum upp á lyfjaskömmtun í samstarfi við Lyfjaver. Kynntu þér þjónustu Reykjavíkur Apóteks með því að hringja í síma 522 8400 eða senda okkur tölvupóst á reyap@reyap.is fyrir frekari upplýsingar.
06.08.2018
Pakkningar margra lyfja sem geta dregið úr árvekni og viðbragðsflýti, eru auðkenndar rauðum þríhyrningi. Því fer þó fjarri að pakkningar allra lyfja sem geta haft slík áhrif séu auðkenndar með þessum hætti. Ein ástæða þess er sú að lyf geta haft einstaklingsbundnar aukaverkanir.
14.05.2018
Lyf eru yfirleitt mikilvirk og vandmeðfarin. Lyfjum er ætlað að hafa mikil áhrif, t.d. á líkamsstarfsemi, eða með því að eyða sjúkdómsvöldum. Bóluefni eru lyf sem koma í veg fyrir sjúkdóma. Sum lyf eru notuð við rannsóknir og þannig mætti áfram telja.