Hvað þýðir rauði þríhyrningurinn?
06.08.2018
Pakkningar margra lyfja sem geta dregið úr árvekni og viðbragðsflýti, eru auðkenndar rauðum þríhyrningi. Því fer þó fjarri að pakkningar allra lyfja sem geta haft slík áhrif séu auðkenndar með þessum hætti. Ein ástæða þess er sú að lyf geta haft einstaklingsbundnar aukaverkanir.