Við tökum við lyfjum til eyðingar á ný

Vegna færri smita í þjóðfélaginu er nú komið að því að fara aftur að taka við lyfjum frá viðskiptavinum til eyðingar sbr. 25. gr. reglugerðar nr. 1266/2017 um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja.

Til að svo geti orðið skal hver og ein lyfjabúð koma sér upp verklagi sem verndar starfsfólk gegn hugsanlegu smiti. Til dæmis með því að nota hanska eða koma upp íláti, kassa eða fötu, sem starfsmaður setur á afgreiðsluborðið og viðskiptavinur setur lyfin þar í. Starfsmaðurinn fer síðan rakleitt að pokanum eða kassanum baka til í lyfjabúðinni, þar sem þeim lyfjum er safnað saman sem eiga að fara til eyðingar. Að lokum eru hendur þvegnar vel.

Lyfjabúðir geta aftur farið að taka við lyfjum til eyðingar frá og með 8. maí nk. að því gefnu að búið sé að koma á öruggu verklagi.

Mánudaginn 11. maí nk. mun birtast frétt á vef Lyfjastofnunar um að nú sé aftur hægt að skila lyfjum til eyðingar í apótek.